Veikindi ekki svo skemmtileg...
Heilsan hér meginn við skjáinn ekki svo góð... náði að krækja mér í eitt stykki ómannlega flensu! Sjúklega ekki vinsæl..!! Ég væri alveg til í að vera á leiðinni á skemmtilegt kvöld kennt við bjór með mínum yndislegu samnemendum..en neinei.. ég fæ frekar að liggja heima með hálsbólgu sem leiðir í eyrnaverk sem svo leiðir í hausverk... Bömmer..
En ef yfirvaldið heldur að ég láti veikindi stoppa skemmtilega helgi er mikill misskilningur þar á ferð.. Reyndar er frekar rólegt plan fyrir föstudaginn þar sem vinnan bíður morguninn eftir... en annað er að segja um laugardagskveldið... Sandra og Begga byttur voru allavega að leita sér að vinum fyrir fyrrnefnt kvöld svo ætli maður komi þeim ekki til bjargar ;)..... maður verður víst að sinna þessum byttum annað slagið..!
Þar sem samviskan kallar... og lærdómurinn hleðst upp (aðeins eftir að lesa tvö stykki bækur fyrir morgundaginn) kveð ég að sinni og afsaka þetta innihaldslausa blogg... betra en ekkert;)