Frú Jósefína lifnuð við svo menn geta tekið lífið í sátt á ný!
Þar sem hin síðan mín dó harmfullum dauðdaga ákvað ég að gera eina tilraun í viðbót....athuga hvernig fer fyrir þessari elsku!
Í tilefni að þetta er fyrsta færslan ætla ég að fara aðeins yfir sumarið - sem var án efa eitt það skemmtilegasta í 18 ára sögu minni..
- Þetta byrjaði nú bara með týpískum hætti íslenskra unglinga þ.e. vinna og það ekki lítið enda Spánarferð framundan.
- Þótt ekkert hafi getað minnkað tilhlökkunina í ströndina voru gerðar alls kyns tilraunir til þess að dreifa huganum og var skellt sér á fjandi skemmtilegar samkundur og aðrar ekki eins skemmtilegar. Jú svo var kíkt í eitt stykki útileigu og bara gott um hana að segja.
- Svo kom að herlegheitunum.. þann 6.júlí fóru 5 svellkaldar skvísur í kagga og lá leiðin beint á Keflavíkurflugvöll. Spenningurinn var óbærilegur þótt við náðum nú að halda kúlinu svona mest allan tímann.
Þrátt fyrir að kvöldið hafi verið ansi langt leitt þegar á hótelið var komið var bara skellt sér í djammgallan og það sem átti að vera eitt stykku rólegt kvöld til að tjekka á hvernig landið lægi þarna í sólinni endaði eitt alhressasta fyllerí sem ég hef nokkruntíman farið á...
Og restin ekki síðri..:
-Sandra lærði að ljúga og náði sér einnig í heimsmeistaratitilinn í þeirri sömu grein.
-Sumir Íslendingar eru villingar aðrir bara einfaldlega bara skrýtnir
-Hún Gabriella, a.k.a ég, fær aðeins lit á næturnar
-Berglind er hlynnt nekt
-Söndru líkar ekki við kakkalakka
-Kakkalakkar synda í hárspreyji
-Begga er klárlega karlmaður í drykkju
-Stella á fleiri en eitt líf
-Magga er sú skynsama
-Og áfengi hefur stóran þátt í að punktarnir eru ekki fleiri..!
Já svo var þessu ekki lokið, eftir sól strönd og smirnoff ice í tonnatali tók við hin geysiskemmtilega þjóhátíð þar sem rok, rigning og önnur skemmtileg heit voru tekin með opnum örmum. Sú helgi stóð alveg fyrir væntingum, enda ekki annað hægt í jafn góðum félagsskap..!
Nú eftir asni mikla tilhlökkun er skólinn byrjaður, já Kvennskólinn minn. Sumarið búið að breytast í eitt stykki skemmtilega minningu í safnið og lítur út fyrir að veturinn verði ekki síðri.
Í dag hófust svo Busadagar. Ég verð að viðurkenna að það hlakkaði svoldið í manni.. er það sönnun þess að mannlegt eðli er í grunninn illt...allavega af elstu nemendum skólans að marka...ar á bæ var streitu síðustu ára hellt yfir greyið nýnemana með öskrum og bönnum meðan við hin, áhorfendurnir, hlógum og glottuðum.. Vond ekki satt! Svo líkur herlegheitunum á morgun með svaka balli á Nasa, kann reyndar vel að meta það.. Því ekki leiðilegt að skemmta sér með slatta af hressum kvennskælingum en heldur síðra að veltast úr þynnku með þeim daginn eftir eins og ég efa ekki að Fimmtudagsmorguninn mun verða... en þetta er auðvitað bara FJÖR!!
Ein hress pía kveður að sinni...sátt með lífið og menn!!