Auglýsing

Allt að gerast...

06. desember 2006 klukkan 02:43
Jiiidúdda prófin bara komin í öllu sínu veldi og stúlkan búin að leggjast undir feld og giftast skólabókunum.. Ég er samt svo ofsalega mikið ekki að nenna því ... svindlaði líka aðeins seinustu helgi.. helgina fyrir próf og tók skellti mér á smá djamm... eða það átti að vera "smá" en varð þetta líka mikla FYLLERÍ sem endaði að hún Gabriella datt út;).. eins og henni er einni lagið..
En það er nú fleira sem er að bresta á ... það eru jú Jólin en fyrst kemur djammhelgi eftir próf, dekurdagur með mínum elskulegu vinkonum sem ég hitti btw ALLT of sjaldan... svo jólaballið..sem verður vonandi mega!!

Já góðir tímar bíða.. eftir prófin...

Svo í Janúar byrjar leiklistaæfingar Fúríu svo það verður mega-mega stuð.. Get virkilega ekki beðið...

En farin að læra svo ég geti glaðst smá yfir sæmilegum einkunnum..

Lifið heil...  
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir

Skrifa athugasemd