Góðir hlutir gerast hægt..!
Morguninn hjá mér var svona:
ZzzZzz (sem sagt ég sofandi) og svo hringir síminn.. ég svara með minni fallegu nývaknaðri rödd og kemst að því að móðir mín var að hringja í mig... eftir nokkur andartök þegar ég hef náð fullri meðvitund fatta ég að klukkan er orðin eitt og hún gabriella átti að vera mætt í vinnu akkúrat þá! Ég muldra eitthvað við móður mína, hendi mér í föt.. lít í spegil..sjúklega sjúskuð með andlit gærdagsins sem ég samt ákvað af einhverjum undarlegum ástæðum að þyrfti ekki að laga.. átta mig á því að þar sem ég hafði verið á skrallinu daginn áður gæti verið dálítið af áfengislykt af mér .. ætla redda því tek svona body spray með lykt og baða mig í því... Ég svona hélt að ég hefði reddað þessu sæmilega og væri nú alveg útihæf .. neinei mæti í vinnuna semí ringluð eftir allt stressið lít í spegil þá er mín bara með maskara niðrá kinn hárið í ruglinu eftir body spray baðið og augun semí rauð og innsokkin. Ég er ekki frá því að vorkenna því aumingja fólki sem ég eftir minni bestu getu reyndi að selja skó í dag.. OJJ
Langaði bara svona að deila þessu með ykkur..
Helgin var svona bara þessi fínasta..vinna, afmæli og lærdómur einkennti hana .. og var þá líka skemmt sér svona gríðarlega vel í gærkveldi... Kann að meta þetta!
*afsaka bloggleysi og myndaleysi síðunnar.. en góðir hlutir gerast hægt.