08. desember 2006 klukkan 20:26
Ég þrái:
Djamm
Söndru í lygasýkiskasti
Tattúið hennar Beggu
Jokers
Skella sér í sjóinn á miðju djammi
Freknur
Sólbað
KFC eftir djamm
Vodka í Red-Bull
Ég ÞRÁI Spán- og stelpur vitiði hvað .. Spánn þráir okkur!
Við út NÚNA!!
Pælíað beila á prófunum og skella mér eitt stykki til útlanda!!!
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
06. desember 2006 klukkan 02:43
Jiiidúdda prófin bara komin í öllu sínu veldi og stúlkan búin að leggjast undir feld og giftast skólabókunum.. Ég er samt svo ofsalega mikið ekki að nenna því ... svindlaði líka aðeins seinustu helgi.. helgina fyrir próf og tók skellti mér á smá djamm... eða það átti að vera "smá" en varð þetta líka mikla FYLLERÍ sem endaði að hún Gabriella datt út;).. eins og henni er einni lagið..
En það er nú fleira sem er að bresta á ... það eru jú Jólin en fyrst kemur djammhelgi eftir próf, dekurdagur með mínum elskulegu vinkonum sem ég hitti btw ALLT of sjaldan... svo jólaballið..sem verður vonandi mega!!
Já góðir tímar bíða.. eftir prófin...
Svo í Janúar byrjar leiklistaæfingar Fúríu svo það verður mega-mega stuð.. Get virkilega ekki beðið...
En farin að læra svo ég geti glaðst smá yfir sæmilegum einkunnum..
Lifið heil...
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
27. nóvember 2006 klukkan 05:34
Morguninn hjá mér var svona:
ZzzZzz (sem sagt ég sofandi) og svo hringir síminn.. ég svara með minni fallegu nývaknaðri rödd og kemst að því að móðir mín var að hringja í mig... eftir nokkur andartök þegar ég hef náð fullri meðvitund fatta ég að klukkan er orðin eitt og hún gabriella átti að vera mætt í vinnu akkúrat þá! Ég muldra eitthvað við móður mína, hendi mér í föt.. lít í spegil..sjúklega sjúskuð með andlit gærdagsins sem ég samt ákvað af einhverjum undarlegum ástæðum að þyrfti ekki að laga.. átta mig á því að þar sem ég hafði verið á skrallinu daginn áður gæti verið dálítið af áfengislykt af mér .. ætla redda því tek svona body spray með lykt og baða mig í því... Ég svona hélt að ég hefði reddað þessu sæmilega og væri nú alveg útihæf .. neinei mæti í vinnuna semí ringluð eftir allt stressið lít í spegil þá er mín bara með maskara niðrá kinn hárið í ruglinu eftir body spray baðið og augun semí rauð og innsokkin. Ég er ekki frá því að vorkenna því aumingja fólki sem ég eftir minni bestu getu reyndi að selja skó í dag.. OJJ
Langaði bara svona að deila þessu með ykkur..
Helgin var svona bara þessi fínasta..vinna, afmæli og lærdómur einkennti hana .. og var þá líka skemmt sér svona gríðarlega vel í gærkveldi... Kann að meta þetta!
*afsaka bloggleysi og myndaleysi síðunnar.. en góðir hlutir gerast hægt.
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
06. nóvember 2006 klukkan 22:15
'Eg, Gabriella, hef ákveðið frá þessari stundu að breyta skoðun minni á digital myndavélum. Ykkur finnst þetta kannski ekkert merkilegt en ég skal sko segja ykkur að þetta eru mikil tímamót!
Fram að þessari merku stundu hef ég verið andvíg þessari nýju tækni því þetta gerir myndir að ómerkilegum hlut og það er alltaf verið að eyða myndum sem eru eki nógu sætar..
Svo ég hef haldið mig við forntæknina og safnað upp nokkrum filmum en tók mig svo á og fór með þær í framköllun um daginn.. Svo í dag var náð í myndirnar .. og vitiði hvað.. best að byrja á því að þær 4 filmur sem ég framkallaði kostuðu 6542 kr... og ekki nóg með það að þær eru hver annarri verri.. Þær eru ÖMURLEGAR... og ég ekki bara búin að tapa seinustu krónunum heldur sit ég uppi með afar óathuglisverðar myndir
Jæja ég held áfram í fýlu minni... og það er ekkert smá vond lykt!!
En þar sem ég ætla sanna mitt mál koma þessar myndir inn innan skamms..!!
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
17. október 2006 klukkan 22:36
Ég er VANHÆF.. já vægt til orða tekin - vanhæfur bloggari..! Ég er alveg mjög svo ómöguleg í að hakda uppi eitt stykki síðu með reglulegur bloggi..
En allavega það er nú ekki að ég hafi ekki haft nóg um að skrifa enda búiðað vera alveg óútskýranlega gaman nú síðastliðin mánuð..
En talandi um skemmtun og gaman þá er ekki hægt að sleppa að tala um seinustu helgi sem var jú mega stuð.. föstudagurinn reyndar aðeins í síðari kantinum þar sem stúlkan skellti sér á Selfoss en endaði reyndar á siðsamlegum tíma heima hjá sér í Reykjavík svo það var nú ekkert svaðalegt djamm þar á ferð.. en svo kom laugardagurinn.. Hún Anna mín tók mið með sér í afmæli..afskaplega vel heppnað afmæli þar sem ég hitti eitt stykki skyldmenni hana Rakel frænku .. svo lá leiðin í bæinn þar sem dansað var af sér rassgatið með mömmunni og frænkunni..;)..
En mánuðurinn bara hálfnaður og Gabriella er orðin afskaplega tæp á fjármagni svo ég ef að gamanið halda svo mikið áfram þennan mánuðinn...reyndar er planiðað reyna gera eitthvað í þessu blessaða vetrarfríi sínu.. en það kemur nú bara í ljós..
Afskapleg innihaldslaust blogg... en nú betra en ekkert..
Setti nú samt eitthvað af gömlum myndum og öðru skemmtilegu..endilega kíkið..!!
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
22. september 2006 klukkan 00:33
Heilsan hér meginn við skjáinn ekki svo góð... náði að krækja mér í eitt stykki ómannlega flensu! Sjúklega ekki vinsæl..!! Ég væri alveg til í að vera á leiðinni á skemmtilegt kvöld kennt við bjór með mínum yndislegu samnemendum..en neinei.. ég fæ frekar að liggja heima með hálsbólgu sem leiðir í eyrnaverk sem svo leiðir í hausverk... Bömmer..
En ef yfirvaldið heldur að ég láti veikindi stoppa skemmtilega helgi er mikill misskilningur þar á ferð.. Reyndar er frekar rólegt plan fyrir föstudaginn þar sem vinnan bíður morguninn eftir... en annað er að segja um laugardagskveldið... Sandra og Begga byttur voru allavega að leita sér að vinum fyrir fyrrnefnt kvöld svo ætli maður komi þeim ekki til bjargar ;)..... maður verður víst að sinna þessum byttum annað slagið..!
Þar sem samviskan kallar... og lærdómurinn hleðst upp (aðeins eftir að lesa tvö stykki bækur fyrir morgundaginn) kveð ég að sinni og afsaka þetta innihaldslausa blogg... betra en ekkert;)
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
13. september 2006 klukkan 03:22
Í dag er merkisdagur.. já hún
Magga mín bara orðin
18 ára... bara gott um það að segja!
Til hamingju elskan..
Helgin á enda og auðvitað strax byrjað að bíða eftir þeirri næstu.. Ég ætla reyndar ekkert að vera kvarta þar sem ég er að fíla skólann alveg botn! ..En helgarnar eru nú samt alltaf
sweet... þessi helgi var nú frekar róleg samt ágæt að því leyti að ég vann mínu seinustu vakt á elliheimilinu Sóltúni. Ekki að það hafi ekki verið skítsæmilegt að vinna þanna þá fann ég að klósettþrif og annars konar þrif heilluðu mig ekkert rosalega... Kannski er það bara ágætt og jafnvel nauðsynlegt fyrir alla að prufa að vinna svona vinnu..ég meina ég er allavega mun betri að mér í alls kyns hreingerningar atriðum og er þar af leiðandi eftirsóknaverðari konukostur;)... jújú svo vakti þetta mann til umhugsunar hvað manni langar ekki að vinna svona vinnu í framtíðinni... en jæja..nóg um klósett þrif og annan þrifnað..
Rock-star í kveld og maður heldur sér nú vakandi til að gjóa augum á manninn.... það er reyndar smá púki í mér sem vill að hann vinni þetta (ég segji púki útaf það er umtalað að hann vilji ekki vinna) ... mér finnst það nefnilega örlítið glatað af honum að hafa komið með svona statements áður en keppnin er búin. Mér finnst svoldið eins og hann sé að fyrirbyggja tap... það að þótt hann tapi þá sé hann bara ánægður með það ... MAður veit samt ekki...skil reyndar að Tomy Lee sé ekki beint eftirsóknarverður félagi... en jæja ég kveð að sinni... Magnavakan nálgast svo imbinn verður fyrir valinu!
Bleee
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
06. september 2006 klukkan 01:49
Þar sem hin síðan mín dó harmfullum dauðdaga ákvað ég að gera eina tilraun í viðbót....athuga hvernig fer fyrir þessari elsku!
Í tilefni að þetta er fyrsta færslan ætla ég að fara aðeins yfir sumarið - sem var án efa eitt það skemmtilegasta í 18 ára sögu minni..
- Þetta byrjaði nú bara með týpískum hætti íslenskra unglinga þ.e. vinna og það ekki lítið enda Spánarferð framundan.
- Þótt ekkert hafi getað minnkað tilhlökkunina í ströndina voru gerðar alls kyns tilraunir til þess að dreifa huganum og var skellt sér á fjandi skemmtilegar samkundur og aðrar ekki eins skemmtilegar. Jú svo var kíkt í eitt stykki útileigu og bara gott um hana að segja.
- Svo kom að herlegheitunum.. þann 6.júlí fóru 5 svellkaldar skvísur í kagga og lá leiðin beint á Keflavíkurflugvöll. Spenningurinn var óbærilegur þótt við náðum nú að halda kúlinu svona mest allan tímann.
Þrátt fyrir að kvöldið hafi verið ansi langt leitt þegar á hótelið var komið var bara skellt sér í djammgallan og það sem átti að vera eitt stykku rólegt kvöld til að tjekka á hvernig landið lægi þarna í sólinni endaði eitt alhressasta fyllerí sem ég hef nokkruntíman farið á...
Og restin ekki síðri..:
-Sandra lærði að ljúga og náði sér einnig í heimsmeistaratitilinn í þeirri sömu grein.
-Sumir Íslendingar eru villingar aðrir bara einfaldlega bara skrýtnir
-Hún Gabriella, a.k.a ég, fær aðeins lit á næturnar
-Berglind er hlynnt nekt
-Söndru líkar ekki við kakkalakka
-Kakkalakkar synda í hárspreyji
-Begga er klárlega karlmaður í drykkju
-Stella á fleiri en eitt líf
-Magga er sú skynsama
-Og áfengi hefur stóran þátt í að punktarnir eru ekki fleiri..!
Já svo var þessu ekki lokið, eftir sól strönd og smirnoff ice í tonnatali tók við hin geysiskemmtilega þjóhátíð þar sem rok, rigning og önnur skemmtileg heit voru tekin með opnum örmum. Sú helgi stóð alveg fyrir væntingum, enda ekki annað hægt í jafn góðum félagsskap..!
Nú eftir asni mikla tilhlökkun er skólinn byrjaður, já Kvennskólinn minn. Sumarið búið að breytast í eitt stykki skemmtilega minningu í safnið og lítur út fyrir að veturinn verði ekki síðri.
Í dag hófust svo Busadagar. Ég verð að viðurkenna að það hlakkaði svoldið í manni.. er það sönnun þess að mannlegt eðli er í grunninn illt...allavega af elstu nemendum skólans að marka...ar á bæ var streitu síðustu ára hellt yfir greyið nýnemana með öskrum og bönnum meðan við hin, áhorfendurnir, hlógum og glottuðum.. Vond ekki satt! Svo líkur herlegheitunum á morgun með svaka balli á Nasa, kann reyndar vel að meta það.. Því ekki leiðilegt að skemmta sér með slatta af hressum kvennskælingum en heldur síðra að veltast úr þynnku með þeim daginn eftir eins og ég efa ekki að Fimmtudagsmorguninn mun verða... en þetta er auðvitað bara FJÖR!!
Ein hress pía kveður að sinni...sátt með lífið og menn!!
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir